ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni fyrir ræðuna. Það vakti athygli mína í ræðu hv. þingmanns að enn stæði yfir leit að fyrirvörum. Hann upplýsti að við værum með mann sem hefði talsverða þekkingu á þessu sviði sem væri að vinna þá vinnu núna, væri utan þingsalar en væri að sinna því starfi. Ekki virðist vera nein breyting á því hjá ríkisstjórninni að taka til greina þær athugasemdir og greiningar sem hér hafa komið fram að mögulega sé fyrirvarana hvergi að finna og að kannski þurfi að hugsa þá upp á nýtt ef ætlunin er að setja þá yfir höfuð, ellegar að upplýsa um það af fullri einlægni og heiðarleika að það hafi hreinlega aldrei staðið til að vera með neina fyrirvara á þessu máli, alla vega ekki fyrirvara sem halda gagnvart þjóðarétti heldur einungis til heimabrúks til þess einkum að friðþægja stjórnarliða sem gáfu kjósendum sínum loforð, bæði í stefnu flokka sinna en einnig í kosningabaráttunni, um að þessi leið yrði ekki farin en líka gagnvart almenningi sem fylgist með þjóðmálaumræðunni. Hver er sýn hv. þingmanns á þetta?