ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Það er ekki hægt annað en að velta þessu fyrir sér þegar þetta tvennt fer saman, annars vegar þessi skyndilegi áhugi á því að reisa vindorkugarða vítt og breitt um landið og hins vegar sú staðreynd sem hv. þingmaður nefndi, þessar tölulegu staðreyndir. Við höfum einmitt reynt að komast til botns í málum með því að skoða grunngögnin og staðreyndirnar. Það sýndi fram á að umtalsverð umframorka er í raforkukerfinu hér og verðið er miklu lægra en í Evrópu.
Maður getur vart annað en dregið þá ályktun af þessu tvennu en að menn geri ráð fyrir að orkan sem framleidd verður í þessum vindmyllugörðum verði flutt út og seld á umtalsvert hærra verði en gengur og gerist nú með orku á Íslandi. Það er bara verst að það mun þýða að öll hin orkan verður á sama verði þannig að orka til heimila og fyrirtækja hækkar fyrir vikið.
Reyndar má bæta við enn einum rökum sem eru þau að það er tiltölulega dýrt að framleiða orkuna með vindmyllum, og reyndar mjög dýrt, miðað við orkuframleiðslu með vatnsorkuverum. Menn hafa því aldrei talið að vindmyllur væru samkeppnisfærar hér á Íslandi. En nú, með þessum væntingum um þessa tengingu og hærra orkuverð, þá er þetta orðið samkeppnishæft líka og ætli menn fari ekki að velta fyrir sér næst sólarsellum og öðrum aðferðum ef framtíðarsýnin er sú að gera Ísland að einhvers konar allsherjarorkugarði fyrir Evrópumarkað.