ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Já, mér þykir þessi umræða mjög áhugaverð og ég held að hún hafi verið mjög vanrækt í þessu stóra máli, þ.e þessir viðskiptalegu hagsmunir þjóðarinnar þegar kemur að innleiðingu á orkupakka þrjú. Meginlínurnar í umræðunni hafa, sérstaklega í upphafi hennar, hverfst um lögfræðileg álitaefni að mestu. En gallinn við þá umræðu er að hún er einsleit og snýst um hvort þessir lögfræðilegu fyrirvarar haldi o.s.frv. Hér er því mjög áhugaverður flötur á þessu máli, þessir viðskiptalegu hagsmunir, og tilefni til að fara mjög ítarlega yfir þá. Þegar búið verður að innleiða orkupakka þrjú, ef það verður veruleikinn, virkjast síðan ACER og allt stjórnkerfið í kringum orkuna og dreifingu hennar þegar sæstrengur verður að veruleika.
Er hv. þingmaður sammála mér í því að viðskiptalegir hagsmunir hafi verið allt of lítið ræddir í þessu samhengi og hvort það sé ekki ein af þeim ástæðum sem ættu að liggja að baki (Forseti hringir.) því að fresta málinu fram á haustið, að ræða viðskiptalega hagsmuni þjóðarinnar miklu ítarlegar en gert hefur verið?