149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:05]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það sem meira er: Þegar við horfum til baka, til innleiðingar í raforkulög árið 2003, höfðu ráðamenn, ráðherra og ráðuneyti ekki einu sinni hugmynd um að rafmagnsverð til heimila myndi hækka. Það lýsir náttúrlega þessu máli algerlega í hnotskurn, þá á ég við orkupakka eitt og tvö, að vera að innleiða eitthvað sem menn höfðu ekki hugmynd um hvaða áhrif hefði á almenning.

Og svo fyrir utan það gengum við lengra en við þurftum að ganga í að skipta þessum fyrirtækjum. Ekki var farið fram á neinar undanþágur vegna sérstöðu okkar eða neitt.

Rétt er að benda á líka að þegar þetta var mótmæltu orkufyrirtækin þessari uppskiptingu. Á það var ekkert hlustað. Það var bara þessi óttablandna virðing gagnvart Evrópusambandinu: Við verðum að gera þetta steinþegjandi og hljóðalaust af því að Evrópusambandið segir það. Af því að þetta er partur af EES-samningnum.

Stundum veltir maður fyrir sér hvort ráðamenn á þessum tíma hafi yfir höfuð lesið EES-samninginn eða skilið hann. Þarna er bara „concrete“, hreint og klárt ákvæði sem við hefðum getað nýtt okkur, undanþáguákvæðið, og bent á sérstöðu okkar sem við hefðum getað nýtt á þessum tíma, á þessum árum. En hvergi var hugsað út í það einu sinni.

Sem segir manni að maður óttast mjög að sama sé uppi á teningnum núna varðandi orkupakka þrjú, að það verði bara að innleiða hann þó svo að hann hafi slæm áhrif fyrir okkur, af því að allt annað sé í uppnámi, þ.e. EES-samningurinn, sem, enn og aftur, hefur þó leið til að ná sameiginlegri niðurstöðu, sem við nýtum okkur ekki, frekar en fyrri daginn.