149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:08]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, þetta er áhugaverð umræða og hún dýpkar sífellt. Áhugavert er að ræða í þessu sambandi hækkunina á raforkuverði og hver greiði raunverulega fyrir þá hækkun. Það verða skattborgarar. Mig langaði til að tengja aðeins inn í þá umræðu sem verið hefur varðandi vindmyllurnar og hvort þær séu raunverulega álitlegur kostur til að tengja inn á flutningskerfi raforku á Íslandi, en ég hef aðeins verið að skoða vindmyllur eftir að hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vakti áhuga minn fyrr í nótt á þeim virkjunarkosti. Þær eru þess eðlis að vindorkugarður getur framleitt um það bil 200 MW, þegar best lætur, það sem við myndum kalla upp á enska tungu, með leyfi forseta, „Max Output“, en dettur niður í 0 MW á stundum.

Í um 20% tímans, samkvæmt þeim tölum sem ég var að rýna í, getur slíkur vindorkugarður framleitt með þessari hámarksafkastagetu. En flutningskerfi raforku sem þarf að tengja slíkan vindorkugarð við þarf hins vegar að geta borið hámarksafköst hvenær sem er, vegna þess að raforka er þess eðlis að hún er framleidd á ákveðnum tímapunkti og hana þarf að flytja til þess sem þarf að nota hana á sama augnabliki. Hana er ekki hægt að geyma í vindmyllunni, líkt og við getum raunverulega stýrt í miðlunarlónum, eins og við gerum í vatnsorkuvirkjunum.

Ég fæ kannski að halda áfram með þetta í síðara andsvari. En mig langaði til að spyrja hv. þingmann ...

(Forseti (SJS): Ég held að það sé heppilegra að bæta við einni ræðu.)