ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir andsvarið. Ég tel að það sé alveg skýrt hvað varðar eftirfarandi: Hinn lagalegi fyrirvari er til kominn vegna þeirrar lögfræðilegu niðurstöðu að verulegur vafi leiki á því hvort innleiðing á orkupakkanum standist ákvæði stjórnarskrárinnar. Þess vegna er þessi lagalegi fyrirvari. Honum er ætlað að vinna á móti því, eða öllu heldur tryggja það að þessi innleiðing sé með þeim hætti að standist ákvæði stjórnarskrár. Það er markmiðið með þessum lagalega fyrirvara.
Síðan gerist það að staðið hefur yfir leit að þessum lagalega fyrirvara, alveg síðan 15. maí síðastliðinn. Unnið er að því hörðum höndum og ég er ekkert að ljóstra upp neinu leyndarmáli þótt ég greini frá því að Miðflokkurinn vill leggja sitt fram í þessu efni og býr svo vel að hafa innan raða síns þingflokks lögfræðimenntaðan mann sem jafnframt hefur reynslu af lögreglustörfum, hafandi um árabil verið lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. Og sömuleiðis hefur hann haft umsjón með kennslu í lögreglufræðum og lögregluþjálfun sem skólastjóri Lögregluskólans. Ég þykist vita að það komi honum að miklu gagni við þá rannsókn og leit, sem ég veit að hann hefur haft með höndum, að þessum lagalega fyrirvara, þ.e. hans lögfræðilega menntun og reynsla af lögreglustörfum.
Hv. þingmaður hefur komið hingað og flutt áfangaskýrslur eftir því sem rannsókn hans hefur undið fram. En það eru alltaf að koma fram nýjar og nýjar staðreyndir í málinu, þar á meðal hin sérkennilega yfirlýsing hæstv. utanríkisráðherra í gær um lagalega fyrirvarann sem einhvern texta í nefndaráliti.
En ég vænti þess að í ræðu sinni á eftir muni hv. þingmaður (Forseti hringir.) greina nánar frá rannsóknum sínum og helstu vinnubrögðum og rannsóknaraðferðum sem hann beitir í þessu máli.