ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni fyrir svarið. Hæstv. utanríkisráðherra var spurður að því í gær hvar hinn lagalega fyrirvara væri að finna — við erum nú að reyna að slá upp og prenta svar hans en því er ekki alveg lokið — og svo virtist sem að hann væri að benda á álit lögfræðilegra ráðgjafa ríkisstjórnarinnar. Hann benti á álit þar sem þessi texti kemur fyrir, að þetta verði gert með lagalegum fyrirvara — sem sérfræðingarnir ætluðu ríkisstjórninni að leggja inn í málið. En ríkisstjórnin, aðspurð, eins og ég greindi frá rétt áðan, bendir á þann texta í álitsgerð sérfræðinganna. Mér sýnist því málið vera komið í hring vegna þess að sérfræðingarnir ætla ríkisstjórninni að setja þennan fyrirvara. En eina svar hæstv. utanríkisráðherra var ábending á þennan texta í álitsgerðinni. Þetta er komið í hring að því er mér virðist. En rannsókn stendur yfir á þessu.
Hv. þingmaður kom líka inn á það í ræðu í morgun að hv. þingmaður suður með sjó hefði í færslu upplýst okkur um hvar þennan lagalega fyrirvara væri að finna. Ég er einmitt með útprentun á þeirri færslu. Þar segir þessi hv. þingmaður að hinn lagalegi fyrirvari liggi hjá atvinnuveganefnd. Þetta er alveg nýtt og þetta þarf auðvitað greiningar við.
Ég spyr því hv. þingmann hvort hann viti til þessa, af því að hann situr í atvinnuveganefnd, og hvort hann hafi séð þennan lagalega fyrirvara í þeirri nefnd.