149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti gerir ráð fyrir því að sá þingmaður sem vísað er til hafi nafn. Ef vísað er þannig til þingmanna að ætla má að þekkja megi hverjir þeir eru er lágmarkskurteisi að nefna þá með fullu nafni, eins og vera ber samkvæmt þingsköpum, þó að menn kunni að hafa gaman af þessu.