149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:34]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns geta þess að þegar ég vísaði til hv. þingmanns suður með sjó átti ég að sjálfsögðu við Silju Dögg Gunnarsdóttur. Ég biðst velvirðingar á því að mér láðist að nefna nafn hennar og þakka ... (Forseti hringir.)

(Forseti (SJS): Það gerir hlut hv. þingmanns ekki betri að um konu var að ræða.)

Ég er ekki viss um að ég hafi heyrt alveg nákvæmlega hvað forseti sagði, en allar leiðbeiningar frá honum eru að sjálfsögðu vel þegnar.

En ef ég hef leyfi forseta til að halda áfram ræðu minni verður að segja það í framhaldi af andsvari hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að það er svo sannarlega rétt að þeir sem haft hafa uppi kröftug andmæli við þriðja orkupakkanum koma alls staðar að úr litrófi stjórnmálanna.

Ég hef nú haft tækifæri til að sitja nokkra fundi í samtökum sem kalla sig Orkan okkar og þar eru ýmsir af þeim sem hv. þingmaður nefndi, en alls ekki allir. Það verður að segjast að það er óvenjulegt að mál sé þannig vaxið að það kalli fram þvílíka samstöðu fólks af ólíkum pólitískum uppruna og manna sem hafa kannski um langan aldur verið pólitískir andstæðingar á Alþingi. Og sömuleiðis er sú ólga sem fyrirfinnst greinilega í þjóðfélaginu til marks um miklar áhyggjur af þessu máli, enda eru stórar spurningar uppi, árekstur við stjórnarskrá og afsal á valdi til erlendra stofnana, miðað við það sem stendur í álitsgerð ráðunauta ríkisstjórnarinnar.