149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:46]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni kærlega fyrir þessa framhaldsræðu. Málefnið er sérstaklega áhugavert og eitt af því sem þarf að ræða í samhengi við þriðja orkupakkann.

Ég hef ekki kynnt mér þessi aflátsbréf, ef svo má að orði komast, til nokkurs gagns. Ég veit af tilvist þeirra og hef vitað um nokkra hríð, og hvernig þau virka. En ég hef ekki kynnt mér þau í þeirri dýpt sem hv. þingmaður hefur gert og hefur reyndar sent fyrirspurn og fengið svar frá ráðuneytinu.

En það sem mig fýsir að vita og kannski ræða, ef hv. þingmaður hefur vitneskju um það, er: Hvenær ákváðum við Íslendingar að selja frá okkur þennan uppruna orkunnar okkar til annarra landa eða annarra orkuframleiðenda? Hvers vegna erum við komin í þá stöðu að nú er í raun og veru minni hluti þeirrar orku sem við notum hér á landi skilgreindur sem hrein orka? Ég held að ég fari rétt með og þætti vænt um ef hv. þingmaður gæti uppfrætt mig um þetta tvennt: Hvenær byrjuðum við á þessu? Og hversu mikla orku framleiðum við í dag sem telst hrein samkvæmt þessum aflátsbréfum?