ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þetta er óneitanlega býsna sérstakt. En hvað þá ef það væri fataframleiðandi á Íslandi að framleiða sokka og vildi selja þá? Gæti hann þá ekki haldið því fram að hann væri að framleiða sokkana með notkun á hreinni endurnýjanlegri orku af því að Landsvirkjun væri búin að selja réttinn til að segjast vera að framleiða vöruna með hreinni orku? Tekur þá Landsvirkjun á sig syndirnar sem Frakkarnir seldu í dæmi hv. þingmanns?
Ég velti því líka fyrir mér hvort þetta kunni að vera gert, þetta fyrirkomulag, í undirbúningi fyrir hið sameiginlega raforkukerfi Evrópu þar sem gert er ráð fyrir að öll orkan fari í einn pott, orkupott ef svo má segja, og svo sé selt úr þeim potti á stöðluðu verði? Þegar sú væri orðin raunin þá mætti kannski segja að rétt væri að við Íslendingar og íslensk fyrirtæki værum að kaupa orku sem væri framleidd með kjarnorku eða kolabruna eða öðrum hætti vegna þess að við værum þá að kaupa úr þessum sameiginlega potti. En sú er ekki staðan núna svo að maður veltir því fyrir sér hvort þetta sé liður í undirbúningi fyrir þessa framtíðarsýn, einn orkupott Evrópusambandsins þar sem allir kaupa úr sama orkubrunni.