149. löggjafarþing — 110. fundur,  25. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[08:18]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni kærlega fyrir þessa ræðu. Þetta er einkennileg markaðsvæðing. Það er merkilegt við þessa ræðu og við það sem haldið hefur verið fram í þessum ræðustól að því sé haldið fram að þetta mál snúist um markaðsvæðingu, neytendavernd og gagnsæi. Miðað við ræðu hv. þingmanns og þau gögn sem liggja fyrir í málinu — það bætist sífellt í þau gögn þar sem við erum með afskaplega góðan og þéttan hóp fólks að baki okkur sem vinnur fyrir okkur gögn úr fjölmiðlum, af heimasíðum orkufyrirtækja úti um allan heim og fjárfesta; fólks sem hefur lagt í hendur okkar gríðarmikið af gögnum eins og heyrist og sést á þessari umræðu — sést að þetta er gríðarlega vanreifað mál og sífellt bætast við upplýsingar sem við höfum úr að moða til að dýpka skilninginn. En það er alveg magnað að halda því fram, miðað við þær lýsingar sem koma fram í ræðu hv. þingmanns, að um markaðsvæðingu sé að ræða í hefðbundnum skilningi þess orðs. Þetta er ekkert annað en einhvers konar afbökun af sósíalísku miðstýrðu kerfi sem á ekkert skylt við markaðsvæðingu. Mér leikur forvitni á að vita hvort hv. þingmaður sjái einhverja sammerkingu á milli þessara upplýsinga frá ríkisstjórninni, um (Forseti hringir.) markaðsvæðingu og gagnsæi og neytendavernd, (Forseti hringir.) og þeirrar merkingar sem venjulegt fólk leggur í þau orð.