ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Já, það er óneitanlega svolítið kúnstugt þegar menn leyfa sér að kynna mál á þeim forsendum að það snúist um neytendavernd þrátt fyrir að málið muni augljóslega leiða til verðhækkunar til neytenda. Því er þá reyndar haldið fram að neytendaverndin snúist um að menn geti valið sér orkusala, en í þessu, eins og svo mörgu sem varðar þetta mál, er einfaldlega litið fram hjá því að aðstæður á Íslandi eru allt aðrar en í flestum hinna landanna sem hafa tekið upp þennan orkupakka. Með öðrum orðum: Þetta er mál sem er sniðið að þeim forsendum sem þurfa að liggja fyrir til þess að ríkið geti fengið undanþágu frá þeim við innleiðingu EES-gerða.
Þetta mál hentar einfaldlega ekki Íslandi, ekki frekar en reglugerð um jarðgas eða aðrar reglugerðir sem Íslendingar hafa fengið undanþágu frá. Það er ekki bara að þetta eigi ekki við heldur væri það stórskaðlegt við þær aðstæður sem hér eru. Og þó að þetta kunni að eiga betur við í öðrum löndum en hér, þá sýnir dæmið sem ég nefndi frá Frakklandi hvers kynni að vera að vænta hér. Þar var um að ræða fyrirtæki í ríkiseigu sem í góðri trú var að framleiða orku þegar Evrópusambandið mætir allt í einu og segir: Þið þurfið að bjóða út réttinn til að framleiða þessa orku. Og því skyldum við þá ekki geta lent í því á Íslandi líka? Þessar áhyggjur höfum við haft frá upphafi, en aldrei fengið skýr svör. En dæmin frá útlöndum sýna að áhyggjur okkar voru ekki ástæðulausar.