ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Hér fyrir framan mig hef ég þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar, stjórnarmál, um innleiðingu þriðja orkupakkans á Íslandi. Margir velta því sjálfsagt fyrir sér af hverju Miðflokksmenn standa hér einir þingmanna. Í gær gerðist það síðast að þingmaður úr öðrum flokki kom hér í ræðustól til að ræða málið sem er efni fundarins. Undantekning var gerð á því þegar þingmaður, sem verið hefur hér í húsi og er í liði stjórnarliða og fylgismaður málsins, kom í ræðustól, undir liðnum fundarstjórn forseta, og sá ástæðu til að ræða fundarstjórn forseta á fundinum án þess þó að sitja þingfund, sem hlýtur að sæta furðu.
Fólk veltir því fyrir sér af hverju Miðflokksmenn standa hér og sitja, einir þingmanna og ræða málið. Ástæðan fyrir því er sú að í þessari þingsályktunartillögu er vikið að því beinum orðum að málið varði stjórnarskrá Íslands. Undir 2. tölulið stendur, með leyfi forseta:
„Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir.“
Stjórnskipuleg skilyrði þýða að efni tilskipunarinnar, efni sameiginlegu ákvörðunarinnar, varði við stjórnarskrá.
Áfram segir:
„Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
Á Íslandi hefur stjórnskipulegur fyrirvari almennt einungis verið gerður þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar“ — stjórnarskrá Íslands, lög nr. 33 frá 1944, 21. gr. — „að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt“ — landsréttinum er með lögum breytt á þann hátt að hann varðar þjóðarétt — „til samræmis við viðkomandi ákvörðun.“
Áfram segir:
„Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.“
Hér er um að ræða þingsályktunartillögu sem varðar stjórnarskrá Íslands. Það er ástæðan fyrir því að við stöndum hér og getum ekki annað. Málið er það stórt að okkur ber skylda til að standa hér og fá niðurstöðu og fá svör við þeim álitaefnum er varða stjórnarskrá Íslands. En þeim álitaefnum hefur ekki verið svarað.
Herra forseti. Þeim álitaefnum hefur ekki verið svarað. Hér er gengið í bága við stjórnarskrá Íslands vegna þess að þeir lagalegu fyrirvarar sem eiga að vera fyrir hendi standast ekki skoðun og munu ekki halda þegar á reynir.