ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég tek undir óskir þeirra þingmanna sem hafa tjáð sig hér um að forseti upplýsi okkur um hversu lengi hann hyggist halda áfram þessum fundi. Ég minni á að eftir tæpa tvo tíma hefst afmælisfagnaður Sjálfstæðisflokksins í tilefni af 90 ára afmæli flokksins. Er búið að fá leyfi hjá Sjálfstæðismönnum, hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, um að hér verði fundað á meðan þeir fagna afmæli sínu? Eins og forseti upplýsti hér um í gærkvöldi gáfu hv. þingmenn Viðreisnar fullt leyfi til að þingfundur stæði þó að þeir væru að fagna þar sínu þriggja ára afmæli. Er einnig búið að afla slíks leyfis hjá hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að þeir geti þá ekki verið viðstaddir umræðuna og hlustað á hana?