ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Mig langar til að byrja á því að óska Sjálfstæðismönnum til hamingju með 90 ára afmælið, en mér hefur verið boðið til fagnaðar af því tilefni í dag. Mig langar til að biðja forseta náðarsamlegast um að upplýsa okkur um hversu lengi hann ætlar að láta þingfund standa. Ég tek undir orð þeirra þingmanna sem hér hafa staðið undir þessum lið á undan mér, að það sé sjálfsögð og eðlileg kurteisi af hálfu forseta að sýna sjálfum sér og öðrum þingmönnum þá lágmarksvirðingu að upplýsa þá um tímalengd fundar svo að menn geti skipulagt störf og einkalíf.