ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Mig myndi helst langa til að fara með hv. þingmanni yfir það að í gær var hér með okkur stutta stund — og þegar ég segi í stutta stund miða ég við lengd fundarins. Ég kvarta ekki yfir því að hæstv. utanríkisráðherra hafi verið með okkur í þrjá tíma þegar fundurinn er búinn að standa í rúma 18. Þá spurði ég hæstv. ráðherra hvort hann hefði gaumgæft lögfræðilegt álit, eða réttara sagt umsögn, sem Eyjólfur Ármannsson lögmaður, sem býr í Noregi, sendi inn. Hæstv. ráðherra kannaðist ekki við að hafa lesið þá umsögn og reyndar sneiddi hann, að mér fannst, því miður, að Eyjólfi Ármannssyni, sem er mjög virtur lögmaður.
Það er í sjálfu sér alvarlegt og vont ef menn velja sér álit til að styðjast við, eins og af hlaðborði, ef þeir telja að niðurstaðan henti þeim hugsanlega ekki.
Á mörgum sviðum er Eyjólfur Ármannsson á sömu slóðum lögfræðilega séð og þeir fræðimenn tveir sem mest hefur verið vitnað til. Hann dregur ekki dul á að hann telur að þetta mál, eins og það er lagt upp hér, standist ekki stjórnarskrá Íslands.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann geti tekið undir það. Og ef svo er, hvort það sé ekki nokkuð alvarlegt mál, (Forseti hringir.) ef við erum að fjalla hér um þingmál sem hætta er á að standist ekki stjórnarskrá lýðveldisins.