ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ég vil í upphafi máls míns óska Sjálfstæðisflokknum til hamingju með daginn. 90 ár er býsna langur tími. Ég vil líka vekja athygli þingmanna á ágætri grein Sigríðar Á. Andersen í Morgunblaðinu í dag sem ég held að allir ættu að lesa, ekki bara Sjálfstæðismenn, en þeir ættu nú að lesa hana líka, reyndar.
Við ræðum orkupakka þrjú á sama tíma og yfir vofir orkupakki fjögur. Hann er orðinn lýðum ljós, ef menn bera sig eftir honum. Ríkisstjórnin, eða ráðuneytin, hefur fjallað um þann pakka en ekkert gert í því að kynna innihaldið fyrir okkur þingmönnum. Hins vegar hafa einhverjir hagsmunaaðilar, svokallaðir, úti í bæ, verið að kynna sér hann.
Ýmsar spurningar hljóta að vakna hjá okkur hv. þingmönnum vitandi það að í orkupakka þrjú felst ákveðið valdframsal. En það er einhver lagalegur fyrirvari sem er mjög óljós. Þá hljótum við að spyrja: Er framhald á þessu valdframsali í orkupakka fjögur?
Maður veltir fyrir sér, herra forseti, hvort það sé virkilega þannig að fjölmiðlar sjái ekki ástæðu til að kafa ofan í innihald þessa fjórða orkupakka til að bera saman pakka þrjú og fjögur, til að komast að því hvað þar er á ferðinni. Eru fjölmiðlar svo slappir á Íslandi að þeir flytji bara fréttir af lengd þingfunda, af málþófi og hver tali lengst í stað þess að kafa ofan í hlutina? Já, svarið er já. Fjölmiðlar eru bara hundslappir þegar kemur að því að kafa ofan í málin.
Ég spyr, herra forseti, varðandi orkupakka fjögur. Ég geri mér engar vonir um — ég ætla reyndar að hafa þetta innan gæsalappa, hafa fyrirvara á þessu og sviga — að hæstv. utanríkisráðherra hafi svarað einhverjum spurningum í ræðu sinni varðandi framhaldið af orkupakka þrjú yfir í orkupakka fjögur. En ég spyr: Hver eru tengslin á milli þessara pakka? Er áframhaldandi valdframsal? Er þessi ACER stofnun að fá aukin völd? Hefur þetta afleiðingar fyrir orkuverð innan EES-svæðisins? Mun orkuverð hækka á Íslandi? Hvaða skyldur fylgja þessum framhaldspakka til íslenska ríkisins? Hvaða áhrif hefur það á íslensk orkufyrirtæki? Hvaða áhrif hefur hann á íslensk ríkisorkufyrirtæki? Hvaða áhrif hefur hann á samkeppni um orkuverð? Verður tekið tillit til sérstöðu Íslands í þeim orkupakka, t.d. hvað varðar orkunýtni bygginga, varðandi jarðvarma, varðandi fallvötnin? Þarf annan stjórnskipulegan fyrirvara á orkupakka fjögur? Eða er hann kominn á færibandið þegar við klárum, ef við klárum, orkupakka þrjú í sumar eða haust?
Þetta eru spurningar sem væri eðlilegt að spyrja núna og fá svör við, herra forseti. Vegna þess að við vitum að við getum séð, þ.e. við getum rannsakað og fengið álit sérfræðinga á því sem í vændum er. En þetta virðist ekki skipta fylgjendur málsins neinu máli. Það er eins og þeir líti svo á að orkupakki eitt hafi verið bara svona sjálfstætt fyrirbæri. Orkupakki tvö verið annað sjálfstætt fyrirbæri. Orkupakki þrjú sjálfstætt fyrirbæri sem hafi enga skírskotun til orkupakka tvö eða framtíðarinnar, sem er vitanlega, virðulegur forseti, sagt á mjög penan hátt, algjört rugl.
Þetta er allt ein samfella sem miðar að því að breyta öllum orkumarkaði Evrópusamstarfsins, Evrópusambandsins og EES-svæðisins, færa völdin frá þjóðþingum til miðstýringarvaldsins. Það hefur m.a. komið fram, ef ég hef tekið rétt eftir, og hef lesið frétt eftir blaðamann að nafni Dave Keating, að Evrópusambandið ætli sér eða hafi planað, áætlað, að færa völdin yfir orkumálum frá þjóðþingum, frá höfuðborgum landanna, til Brussel.
Við snúum ekki til baka hér á Íslandi. Við hverfum ekki frá þessari stefnu ef við tökum þátt í að innleiða hana, sem er það sem menn eru að gera með orkupakka þrjú eru menn að taka skref í þá átt sem hér var verið að lýsa.