ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Auðvitað eru einkareknir fjölmiðlar ekki öfundsverðir af því að þurfa að keppa við þá hít sem Ríkisútvarpið er. Yfirborðsleg fréttamennska um þennan orkupakka er einkennandi. Ríkisútvarpið hagar sér eins og óþarfur kjaftaklúbbur þegar kemur að því að ræða þetta mikilvæga mál. Það er hreint með ólíkindum að bara sé talað í fyrirsögnum um málþóf, lengd fundartíma og tekin viðtöl við þingmenn sem botna ekkert í þessu. Það er ekkert reynt að skoða málið ofan í kjölinn.
Kannski fær þetta fyrirbæri ekki nógu mikla peninga. Kannski þurfum við bara að setja 2 milljarða í viðbót, eitthvað svoleiðis, í Ríkisútvarpið til að það geti sinnt því hlutverki sínu. Það vona ég að verði aldrei, segi ég nú bara.
Það er áhyggjuefni þegar við berum okkur saman við eða horfum til fjölmiðla víða erlendis þar sem er svigrúm til að, ég ætla bara að segja: gegnumlýsa mál sem þessi. Það er allt of lítið gert af því hér, því miður, allt of lítið.
En það breytir því ekki að málið er flókið. Málið er stórt. Málið snýst um framtíðina. Það sem við afgreiðum og ræðum í dag, og að sjálfsögðu á það við um allt sem við gerum hér á þingi, snýst meira og minna um framtíðina.
Ef það er þannig á níræðisafmæli Sjálfstæðisflokksins að sá flokkur vill ekki skoða, þegar hann getur það, framtíðina í orkupakka fjögur út frá fullveldi landsins, hef ég áhyggjur af þeim aldagamla flokki sem staðið hefur sig mjög bærilega fyrir hönd Íslands í 90 ár. En svona er þetta.