149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá Steinunni Þóru Árnadóttur, 6. þm. Reykv. n., þar sem hún óskar eftir því að Álfheiður Ingadóttir taki sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.

Einnig hefur borist bréf frá starfandi formanni þingflokks Framsóknarflokksins þar sem óskað er eftir því að Þórarinn Ingi Pétursson taki sæti á Alþingi sem varamaður fyrir Þórunni Egilsdóttur, 4. þm. Norðaust.

Í dag, mánudaginn 27. maí, taka því Álfheiður Ingadóttir og Þórarinn Ingi Pétursson sæti sem varamenn. Þau hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.