149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

utanspítalaþjónusta.

[15:13]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Rétt eins og hv. þingmanni brá mér við þessar fréttir af slæmu ástandi sjúkraflutninga á Borgarfirði eystra. Það hefur komið fram að slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum á Austurlandi kalli eftir því að viðbragðshópi á Borgarfirði eystra verði fundið skjól innan heilbrigðiskerfisins, heimamenn séu viljugir til að bjarga sér en þurfi stuðning og heimildir til þess ef haft er rétt eftir slökkviliðsstjóranum fyrir austan.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fæ í ráðuneytinu þegar ég spyr sérstaklega eftir þessu máli hefur heilbrigðisþjónustu á Borgarfirði eystra farið verulega aftur eftir að hjúkrunarfræðingur sem þar bjó flutti burt fyrir nokkrum árum. Nú er þar svokallað heilsugæslusel sem læknir sinnir reglulega. Bráðaviðbragð er lítið og langur biðtími eftir sjúkrabíl, eins og á fleiri afskekktum stöðum hér á landi, eins og kemur fram í ábendingu hv. þingmanns.

Nú er það svo að Borgarfjörður eystri er hluti af heilbrigðisumdæmi HSA og forstjórinn hefur átt fund með íbúum Borgarfjarðar og boðaði nýverið fund með sveitarstjórninni. Sá fundur fer fram núna 3. júní. Hann hefur líka átt fund með slökkviliði Fjarðabyggðar um hugsanlega aðkomu slökkviliðsins að lausn málsins. Væntanlegar eru tillögur frá honum að lausn á næstu dögum.

Ég er sammála hv. þingmanni um að staðan sem er uppi á þessum stað, og því miður kemur hún upp með reglulegum hætti á afskekktum stöðum, getur ekki beðið eftir heildarstefnumótun. En það breytir því ekki að von er á stefnumótun í sjúkraflutningum á þessu ári með aðkomu formanns fagráðs sjúkraflutninga, fagdeildar sjúkraflutningamanna innan Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, umsjónarlækni sjúkraflutninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri, fulltrúa Neyðarlínu Landsbjargar og skólastjóra Sjúkraflutningaskólans. Um leið og við erum að sinna stefnumótuninni í heild er verið að vinna að því að leysa úr þessu ástandi (Forseti hringir.) á Borgarfirði eystra.