149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

kínverskar fjárfestingar hér á landi.

[15:22]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir svarið. Ég er eilítið rólegri. Staðreyndin er sú að þar til nýlega hafa lönd innan ESB ekki haft sérstakt sameiginlegt áhættumat vegna erlendra fjárfestinga á innri markaði okkar. Þetta er okkar markaður líka. Þegar ég segi sameiginlegt áhættumat er ég ekki að tala um hinar hefðbundnu, erlendu fjárfestingar, heldur fjárfestingar sem miða að þeim innviðum sem þjóðir líta alla jafna á sem sérstakt öryggiskerfi, þ.e. grunnstoðir samfélagsins, þar á meðal samgöngur og ekki síst hafnasamgöngur.

Síðasta haust var ákveðið á sameiginlegum vettvangi ESB að koma á stofn slíku sameiginlegu áhættumati og er hvatinn ekki síst rakinn til þessa sívaxandi áhuga kínverskra stjórnvalda á innviðafjárfestingu í álfunni.

Mig langar í lokin að spyrja hvort hæstv. forsætisráðherra geti verið mér sammála um að fullveldi Íslands sé betur borgið með því að taka fullan þátt í því með evrópskum frænd- og vinaþjóðum okkar að tryggja hér eins og kostur er þau gildi frjálslyndis, velferðar og jafnréttis sem við höfum haft að leiðarljósi, frekar en að sækjast eftir því að verða hluti af hinni kínversku fjölskyldu, sama hversu margfalda Marshall-aðstoð sú (Forseti hringir.) umsókn hefði í för með sér, eins og það hefur verið orðað í umræðunni.