kínverskar fjárfestingar hér á landi.
Herra forseti. Fyrir mér er íslenskt samfélag ekki á neinni vonarvöl og við þurfum ekki á neinni aðstoð að halda til að reka hér blómlegt samfélag. Ef við viljum horfa til þess hvað skiptir okkur máli fyrir fullveldishagsmuni okkar vil ég segja að það er skoðun mín að samgöngumannvirki og grunnmannvirki eigi að vera rekin á almannaforsendum og vera í almannaeigu. Það er mín almenna skoðun á því. Alveg óháð því hvaða útlendinga er um að ræða er það bæði almannahagsmunamál og fullveldismál að málum sé þannig háttað.
Hið sama vil ég segja, af því að ég nefndi áðan það sem er mikið rætt, landakaup almennt, að ég held að það sé mjög mikilvægt að Alþingi taki þau mál til sérstakrar umræðu á næsta þingvetri. Ég á von á skýrslu um þær takmarkanir sem gilda víða á jarðakaupum almennt í löndunum í kringum okkur. Ég held að það sé mjög mikilvægt að Alþingi fari að taka skýra afstöðu til þess hvaða reglur við viljum að gildi því að það er líka stórt mál í þessu samhengi.