veiðar á langreyði.
Herra forseti. Ég verð að lýsa yfir talsverðum vonbrigðum með þetta svar. Eins og ég skil hæstv. ráðherra kemur fyllilega til greina að veita þetta veiðileyfi. Allar pólitískar ákvarðanir eru að sjálfsögðu háðar hagsmunamati og ég tel að hér sé á ferðinni rangt mat. Að Ísland heimili veiðar á stórhvölum á ekki að vera einkamál eins ráðherra eða eins fyrirtækis. Það eru ekki margar fréttir sem koma Íslandi í heimsfréttirnar, en þetta er frétt sem gerir það og ekki af góðu.
Ráðherrann getur þess sérstaklega að ekki mæli margt gegn þessari ákvörðun og þessum veiðum en það er einmitt fjölmargt sem mælir gegn þeim. Þær eru efnahagslega vafasamar. Þær eru siðferðislega vafasamar. Við þurfum ekki að vera sammála um siðferðið, en þetta stefnir öðrum hagsmunum Íslands í voða að óþörfu.
Þess vegna vildi ég kalla fram skýrari afstöðu frá hæstv. ráðherra og kannski öðrum ráðherrum, að við gætum tekið skýra afstöðu gegn frekari drápum á þessu næststærsta (Forseti hringir.) dýri jarðar. Hér erum við einfaldlega, herra forseti, að fórna meiri hagsmunum fyrir minni og það er miður.