veiðar á langreyði.
Virðulegi forseti. Hér fullyrðir hv. þingmaður að sú skoðun sé uppi að til greina komi að veita þetta leyfi. Að sjálfsögðu kemur það til greina þar sem heimild til hvalveiða var gefin út og þá fylgjast þessar tvær ákvarðanir að eðli málsins samkvæmt. Vegna þeirra orða hv. þingmanns að þetta sé skaðlegt fyrir viðskiptahagsmuni og fleiri þætti, t.d. orðspor Íslands á erlendri grundu, liggur fyrir að til er mat á því hjá utanríkisráðuneytinu og jafnvel Íslandsstofu hvert viðhorf erlendis er til þessara veiða. Þær kannanir hafa nú verið gerðar í hartnær tvo áratugi. Það væri sjálfsagt að upplýsa hv. þingmann um það ef ég hefði það við höndina, en ég las það fyrir allnokkru. Sú greining er til og ég leyfi mér að fullyrða að hún er ekki endilega í samræmi við þær áherslur sem menn hafa haldið fram (Forseti hringir.) og hv. þingmaður staðhæfir.