umræða um þriðja orkupakkann.
Virðulegi forseti. Nú hefur þriðji orkupakkinn verið á dagskrá þingsins í meira en viku og er löngu orðið frekar langt og þreytt málþóf eins og allir vita og allir sjá og ég hugsa að allir viðurkenni. Umræðan hefur nær alfarið farið fram á forsendum eins tiltekins flokks á hinu háa Alþingi og þótt ég hafi haldið nokkrar ræður um málið, örfáar, farið svolítið í andsvör, kom það upp að þannig væri litið á að ég væri sjálfur að taka þátt í einhvers konar málþófi sem er ekki tilfellið. Nú er komin vika í viðbót af þessu og bábiljurnar og rangfærslurnar sem hv. þingmenn Miðflokksins hafa látið flakka eru orðnar ansi margar og ítrekaðar. Það slæma er að þær eru farnar mjög víða í samfélaginu og það er svolítið erfitt að bregðast við þessu fyrir okkur sem erum einfaldlega …
(Forseti (SJS): Forseti hvetur hv. þingmann til að beina fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra eins og vera ber undir þessum dagskrárlið.)
Virðulegur forseti. Ég kem mér að því ef ég fæ að klára mál mitt. Ég og aðrir höfum þurft að standa í því að verja þetta mál ríkisstjórnarinnar í almennri umræðu og hér á þingi og það sem ég ætlaði að spyrja hæstv. ráðherra var hvort ekki væri kominn tími til að ríkisstjórnin færi að verja þetta mál og hætti að skilja það eftir handa okkur hinum sem berum ekki ábyrgð á því og höfum enga sérstaka pólitíska eða aðra hagsmuni af því að það fari í gegn á þessu vori. Okkur er einfaldlega illa við ósannindin og bábiljurnar sem fá að flakka hér og bregðumst við af þeim sökum fyrst og fremst — er það okkar verk að verja mál ríkisstjórnarinnar? Er það ekki í verkahring ríkisstjórnarinnar og ráðherranna sjálfra að koma hingað í pontu og verja sín eigin mál, skrifa greinar? Þó að við getum gagnrýnt hv. þingmenn Miðflokksins, Orkuna okkar og svoleiðis er samt fólk úti í bæ sem verður fyrir þessum bábiljum og trúir þeim vegna þess a það veit ekki betur og getur ekki endilega vitað betur. Það þarf að bera virðingu fyrir því. Það er hlutverk okkar þingmanna hér að rökræða málin og þótt annað lið sem við erum ósammála taki allan okkar tíma firrir það okkur ekki ábyrgð á því að taka þátt í umræðunni líka. Ætlar ríkisstjórnin ekki að axla neina ábyrgð á því að taka þátt í umræðu um þetta mál?