umræða um þriðja orkupakkann.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrirspurnina. Hann spyr mig hvort þingmenn stjórnarflokkanna ætli ekki að taka þátt í umræðum um þriðja orkupakkann. (HHG: Og ráðherrar.) Og ráðherrar. Utanríkisráðherra var hér á föstudaginn þegar málið var síðast til umræðu og var hér allan eftirmiðdaginn að ræða þriðja orkupakkann við hv. þingmenn Miðflokksins.
Hv. þingmenn og ráðherrar stjórnarflokkanna hafa vissulega rætt málið hér framan af við bæði fyrri og síðari umr. Eins og fram hefur komið í máli mínu tel ég að langflestar og allar röksemdir málsins séu fram komnar og að þeim hafi verið svarað. Ég tel ekki þörf á að ræða þetta mál öllu lengur, en um leið segi ég að ég virði málfrelsi hv. þingmanna til að nýta sér þær heimildir sem eru í lögum um þingsköp til að ræða þau mál sem á þeim brenna. Ég tel hins vegar að stjórnarþingmenn sem og þingmenn annarra flokka hafi vissulega komið sínum málstað á framfæri.
Ég átta mig ekki á því alveg hvort hv. þingmaður telur að þingmenn og ráðherrar stjórnarflokkanna hafi ekki tekið þátt í þessari umræðu. Síðasti maður sem tók þátt í þessari umræðu fyrir utan hv. þingmenn Miðflokksins var einmitt hæstv. utanríkisráðherra sem var hér allan föstudagseftirmiðdaginn. Ég átta mig ekki alveg á spurningunni, ef ég á að vera alveg heiðarleg.