149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

umræða um þriðja orkupakkann.

[15:35]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Það sem veldur mér sífellt vonbrigðum í pólitíkinni er hvernig stjórnmálamenn — ég skal segja bara „við“ svo að ég sé ekki bara að benda fingri á einhvern annan — láta oft eins og það sé ekki á okkar ábyrgð að bregðast við því þegar aðrir stjórnmálamenn gera eitthvað. Það er stundum á okkar ábyrgð.

Og það er gott og vel að hér hafi einhverjar umræður loksins átt sér stað á föstudaginn. Það má vera. En greinilega þarf meira. Þessi umræða er í samfélaginu, sama hvað okkur finnst um umræðuna í þinginu. Eins og ég segi er fólk úti í samfélaginu sem trúir því frá hjartans rótum að það sé verið að ganga á sjálfstæði og auðlindir Íslands. Það er náttúrlega í stuttu máli vitleysa. Það er ekki rétt en fólkið í landinu verður að heyra svörin við þessum málflutningi og verður að heyra þau oft. Við getum ekki bara gefið öðrum sviðið til að endurtaka vitleysuna án þess að bregðast við sjálf. Þetta er það sem ég kem að.

Við vitum alveg hvernig menningin er á þingi gagnvart svokölluðu málþófi, að maður eigi ekki að taka þátt í því. Það er það sem ég er að spyrja að. Þurfum við ekki að taka þátt (Forseti hringir.) í þessari umræðu? Það er varla neitt leyndarmál að þingmenn meiri hlutans forðast að gera það af ótta við að tefja málið frekar.