149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

umræða um þriðja orkupakkann.

[15:36]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um að þriðji orkupakkinn felur ekki í sér afsal yfir orkuauðlindum Íslendinga. Hann felur ekki í sér afsal yfir orkufyrirtækjum Íslendinga. Það er staðreynd málsins. Hún hefur ekki verið hrakin. Hann felur ekki í sér kvöð um að hingað skuli lagður sæstrengur. Það er ákvörðun Alþingis ef til þess kemur nokkru sinni, sem ég vona ekki. Þriðji orkupakkinn felur ekkert af þessu í sér. Lögfræðingar hafa verið nokkuð sammála um það hvað hann feli í sér. Því er margoft búið að svara hér í þessari pontu.

Ég skil vel angist hv. þingmanns yfir því að það er margt rangt á flugi í umræðu um þessi mál. Ég er sammála hv. þingmanni um það. En þetta hefur líka margoft komið fram, ekki bara af hálfu þingmanna og ráðherra stjórnarflokkanna, heldur líka þingmanna annarra flokka. Hér eru sex flokkar á þingi sem vilja ljúka þessu máli og samþykkja það. Að auki er sjöundi flokkurinn sem er á móti málinu en tekur ekki þátt í málþófi því að hann telur mikilvægt að lýðræðislegur vilji birtist á Alþingi. Áttundi flokkurinn hefur hins vegar nýtt sér þann rétt sem hann hefur til að tala um málið

Ég tel eðlilegt (Forseti hringir.) í þessu máli, í ljósi þess hvernig það er vaxið, að lýðræðislegur vilji þingsins komi fram og birtist og sá lýðræðislegi meiri hluti axli ábyrgð á þeirri ákvörðun sem hann er reiðubúinn að styðja í atkvæðagreiðslu um málið.