149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

frumvarp um laxeldi.

[15:38]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Mig langar að spyrja hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra um frumvarp um laxeldi og hvernig hans aðkoma hefur verið að því máli.

Í umhverfisstefnu Vinstri grænna segir, með leyfi forseta:

„Vistkerfi jarðar stendur ógn af markaðshagkerfinu. Gróðasjónarmið hafa ráðið för í umgengni við náttúruna.“

Svo stendur aðeins neðar, með leyfi forseta:

„Náttúran njóti vafans.“

Það sem mig langar svolítið að átta mig á í þessu ríkisstjórnarsamstarfi er hvernig ferlið fer fram þegar fram kemur frumvarp sem hefur verið gagnrýnt mjög af umhverfisverndarsinnum og -hópum. Það frumvarp sem er núna í vinnslu nefndarinnar hlýtur að hafa farið í gegnum ríkisstjórnina, eins og eðlilegt er. Var hæstv. umhverfisráðherra á þeim fundi? Lagði hann til að því yrði eitthvað breytt? Vildi hann vísa því til baka eða samþykkti hann það bara? Og hvers vegna samþykkti hann það ef hann gerði það? Eða var ekki orðið við óskum hans um einhverjar breytingar?

Ég er að reyna að átta mig á hvaða völd umhverfisráðherra í umhverfisflokki hafi í þessari ríkisstjórn þegar kemur að frumvörpum sem eru lögð fram af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Er það þá bara þannig að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra leggur fram frumvarp, það frumvarp er um fiskeldi og útvíkkun á því, en hann fær bara að hafa það eins og hann vill hafa það? Og þar sem hann er með sjávarútvegs- og landbúnaðarmálin þurfa umhverfismálin að víkja þegar tekin er ákvörðun um þetta? Það væri mjög áhugavert að fá að heyra um þetta.

Það sem hefur ekki komið fram er að í vinnslu atvinnuveganefndar eru ýmis umhverfissjónarmið sem hafa vel komið fram í vinnslu framsögumanns málsins, Kolbeins Óttarssonar Proppés, í Vinstri grænum. Það eru mörg atriði sem koma þar inn í. En ég hef áhyggjur af því hvort allt eftirlit með því að þetta sé raunverulega gert — við vitum hvernig svona eftirlit virkar á Íslandi, það er ömurlegt, það mun ekki virka. Jafnframt eru alls konar mótvægisaðgerðir svo dýrar, margar hverjar, eins og að setja einhvers konar laxateljara í laxár þar sem er hægt að sjá hvort þiskurinn sé úr fiskeldi o.s.frv. varðandi hrygningu og fjölbreytileika lífríkisins.

Hvernig er með umhverfisráðherra? Hvaða völd hefur hann í þessu? Og hvaða aðkomu hefur hann haft að málinu?