149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

frumvarp um laxeldi.

[15:40]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka þingmanninum fyrirspurnina. Hér er spurt um aðkomu mína sem ráðherra, og þá ráðuneytis míns, að frumvarpi um breytingar á fiskeldi. Ég man ekki fyrir hve löngu það var en a.m.k. í aðdraganda málsins var í fyrsta lagi skipuð nefnd sem vann að því að koma með ákveðnar tillögur sem frumvarpið var síðan unnið upp úr. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið átti fulltrúa í þeirri nefnd þannig að þar var aðkoma ráðuneytisins. Þetta er reyndar fyrir minn tíma í ríkisstjórn. Það kom síðan í hlut núverandi sjávarútvegsráðherra að leggja fram frumvarpið í fyrravor. Þar kom það náttúrlega bæði fyrir ríkisstjórn og síðan aftur núna.

Á þessum tíma höfum við sjávarútvegsráðherra átt nokkra fundi um þetta mál. Ég hef komið mínum skoðunum á framfæri. Einhverjar breytingar urðu vissulega á þeim drögum sem þá voru fyrir hendi.

Ég hef líka verið alveg ófeiminn við að segja mína skoðun á þessum málum sem eru einfaldlega þær að mér finnst að við þurfum að þróa fiskeldi á Íslandi í þá átt að við getum litið til þess að á næstu 10–15 árum þróum við fiskeldi úr því að það sé hætta á slysasleppingum sem geti valdið erfðamengun í ánum okkar við villta laxastofna yfir í það að við séum með kerfi þar sem slíkt gerist ekki. En við þurfum að gefa því tíma þannig að það verði aðlögun í greininni.

Ég sé ekki betur en að þær breytingar sem verið er að gera núna séu sumar hverjar svolítið í þá átt. Það er bætt við hvötum. Síðan er líka fjallað sérstaklega um að þetta atriði þurfi að taka fyrir í framtíðinni þegar lögin komi til endurskoðunar ef ég skil rétt nefndarálitið sem komið hefur fram.