frumvarp um laxeldi.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir stjórnmálagreininguna. Ég vil taka það skýrt fram að þegar mál eru lögð fram af ráðherrum í ríkisstjórn og koma síðan fyrir Alþingi eru þau alltaf á ábyrgð viðkomandi ráðherra. Auðvitað á sér stað ýmislegt samtal áður en slíkt gerist o.s.frv. og ég hef komið mínum skoðunum á framfæri, bæði opinberlega og við ráðherrann og í ríkisstjórn. Auðvitað er það bara þannig að maður fær ekki alltaf allt sem maður vill. Þannig er lífið. En ég er alveg skýr með það hver mín afstaða er í þessu máli. Síðan getum við rætt það hvernig fylgið leggst einhvern tíma seinna og kannski einhvers staðar annars staðar en hér.