athugasemdir forseta við orð þingmanns.
Það hefur ekkert með það að gera hvaða þingmenn eiga í hlut. Forseti leitast við að láta þingmenn halda sig við umræðuefnið. Þegar um er að ræða liðinn óundirbúnar fyrirspurnir og hv. þingmenn hafa beðið um orðið til að spyrja tiltekinn ráðherra spurninga ber þeim að gera það en ekki nota meiri hlutann eða helminginn af sínum ræðutíma í árásir á aðra flokka. Við slíkt gerir forseti athugasemdir. Menn eiga að halda sig við umræðuefnið. Ef eitthvað er þarf að auka aðhaldið í þeim efnum því að það gerist æ algengara að menn tali um eitthvað allt annað en til stendur miðað við þann dagskrárlið sem undir er. Vonar forseti að þetta skýri málið nokkuð.