149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

athugasemdir forseta við orð þingmanns.

[15:47]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Þá vonast maður til þess að jafnræðis verði gætt hvað þetta varðar. Maður hefur tekið eftir því varðandi bjölluhljóm o.s.frv. að jafnræðis er ekki alltaf gætt úr forsetastóli. Við munum fylgjast með því að forseti gæti jafnræðis hvað þetta varðar.

(Forseti (SJS): Það gleður forseta að náið verði fylgst með störfum hans og hann þiggur alla aðstoð við að halda sig á réttum nótum í þessum efnum.)