athugasemdir forseta við orð þingmanns.
Það er munur á hvort um er að ræða almenna umræðu um dagskrármál þar sem svigrúmið er býsna ríkt til að fara víða yfir eða hvort um er að ræða mjög skýrt afmarkaðan umræðuvettvang samkvæmt þingsköpum eins og óundirbúnar fyrirspurnir eru. Þá fær tiltekinn þingmaður orðið til að spyrja tiltekinn ráðherra spurningar. Þá komast ekki aðrir þingmenn að, t.d. til að svara fyrir sig eða bera hönd fyrir höfuð sér. Þá ber að skilgreina það þrengra. Hversu langt er eðlilegt að menn gangi til að beina spjótum að mönnum sem alls ekki komast að í umræðunni?
Hér er um gamla heiðursmannareglu að ræða, að veitast ekki með óeðlilegum hætti að þeim sem ekki hafa rétt til að svara fyrir sig, og hefur alltaf þótt góð venja. Það var stundum talað um það hér í gamla daga þó að ekki sé fallegt að menn veittust ekki að þeim sem eru dauðir í umræðunni. Það þýðir að þeir eigi ekki ræðurétt í viðkomandi umræðum. Þetta þarf að hafa í huga þegar reynt er að hafa aga á umræðu af þessu tagi og stuðla að því að góð regla sé á fundi og að menn haldi sig við umræðuefnið.