149. löggjafarþing — 111. fundur, 27. maí 2019.
athugasemdir forseta við orð þingmanns.
Forseti. Ég tek undir þetta. Þetta er góð meginregla sem ítrekað hefur verið haldin hérna, m.a. undir liðnum störf þingsins. Ef þingmenn ætla að beina spjótum sínum eða orðum sínum að öðrum þingmönnum óski þeir þess fyrir fram að sá þingmaður sé tilbúinn að svara eða alla vega að honum sé gefið tækifæri á því að koma og svara. Þetta er góð meginregla og mig langaði bara til að undirstrika það. Þetta var rétt ákvörðun forseta.
(Forseti (SJS): Forseti þakkar varaforseta sínum stuðninginn.)