ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Sæstrengurinn er ekki bara einhver hugmynd. Sæstrengurinn er á teikniborðinu. Hann á að vera þannig úr garði gerður, segir í stórblaðinu Times, að veita á orkunni í gegnum hann á hárri spennu með það að markmiði að flutningstap verði um eða innan við 5%. Þetta kemur fram í blaðinu. Í blaðinu kemur einnig fram að farið er að leita hófanna meðal fjárfesta til að fjármagna þetta verkefni. Hver er fenginn til þess? Einn fremsti fjárfestingarbanki í heimi, JP Morgan.
Það er náttúrlega eins gott að menn hafi allan vara á sér og sýni fyllstu aðgætni og varúð í þessu máli.
Spurningin sem er uppi í málinu er: Hvaða hald yrði í því gagnvart EFTA-dómstólnum í samningsbrotamáli að segja: Já — nei, við sömdum við sjálf okkur á hinni íslensku löggjafarsamkomu, Alþingi, að enginn sæstrengur yrði lagður. Er það svar líklegt til að verða metið gilt í ljósi þeirra skuldbindinga sem við öxlum með því að hafa tekið upp reglugerð 713 í íslensk lög? Það er spurningin.
Og það er ekki að sjá að hinir lögfræðilegu ráðunautar ríkisstjórnarinnar telji að neinar mótbárur af slíku tagi yrðu teknar gildar. Það sést af orðum þeirra, með leyfi forseta: „Slík staða gæti reynst Íslandi erfið.“