ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og vil þakka honum fyrir það hversu vel og upplýsandi ræður, góðar ræður, hann hefur haldið einmitt um þessa lagalegu fyrirvara. Ég vil þakka honum fyrir að skýra það út með einföldum hætti hversu haldlitlar reglugerðir eru í þessum efnum. Hér er um það stórt og mikið mál að ræða að það að halda að einhver reglugerð um einhvern fyrirvara geti bara leyst málið hvað varðar Ísland og framtíð okkar, þegar kemur að orkumálum og sameiginlegum orkumarkaði Evrópusambandsins, er nú svona léttvæg leið, eigum við ekki að segja það, til að reyna að sannfæra okkur um að allt sé tryggt í þessum efnum og við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur.
Mig langar aðeins að nefna eitt sem hv. þingmaður kom inn á varðandi sæstrenginn. Auðvitað er það svo að með sæstrengnum virkjast þau ákvæði að við missum forræðið yfir þessum málum. Þessi yfirþjóðlega stofnun, ACER, kemur þá til með að taka yfir og þar með höfum við sáralítið um þessi mikilvægu mál okkar að segja. En nú hafa t.d. bæði Landsvirkjun og Landsnet talað fyrir sæstreng og án þess að Alþingi hafi falið þessum fyrirtækjum okkar, sem eru í almannaeigu, að gera svo. (Forseti hringir.) Er það ekki alveg augljóst að það sama verður upp á teningnum þegar kemur að því að leggja sæstreng?