ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svarið. Já, nú hefur líka verið á það bent að orkuverð hefur ekki lækkað þvert ofan í það sem haldið hefur verði fram. Það hefur m.a. verið sýnt fram á það og hv. þingmaður gert það alveg ágætlega af eigin reynslu. Það ætti því að vera hvatning til þess að fjallað verði um það sem tengdan hluta af þessu öllu saman. Það er eitt sem við höfum ekki fengið svör við: Hver eru áhrif orkupakka fjögur beint ofan í orkupakka þrjú á raforkuverð til heimila og fyrirtækja á Íslandi? Hver eru áhrifin á raforkuverð til grænmetisbænda? Erum við að stíga skref í þá átt að það verði hreinlega orðið hagkvæmara að standa í innflutningi á vörum sem við vitum ekki hvaðan koma meðan við erum með besta grænmeti í heimi, leyfi ég mér að segja, framleitt á Íslandi? Hv. þingmaður kemur úr kjördæmi þar sem meginhluti grænmetis- og blómaræktar fer fram. Maður hlýtur að finna fyrir miklum áhyggjum hjá bændum varðandi þá ótrúlegu vegferð sem stjórnarflokkarnir eru í, að markaðsvæða enn frekar raforkuna. Og að Vinstri grænir skuli taka þátt í því er vitanlega hreint með ólíkindum, eins og fyrrverandi þingmaður þeirra, Ögmundur Jónasson, hefur bent á.
En spurning til hv. þingmanns er kannski sú í ljósi ræðu hans um fjölmiðla: Hefur þingmaðurinn orðið var við að fjölmiðlar hafi sérstaklega kafað ofan í það sjónarmið garðyrkjubænda að þeir hafi áhyggjur af því að raforkuverð muni hækka gangi orkupakki þrjú eftir? Og getur verið að áhyggjur þeirra stafi af einhvers konar þekkingu sem þeir hafa umfram okkur á því sem er í vændum? Eða er það bara hreinlega orkustefna Evrópusambandsins sem öllum er ljós í dag og hægt að finna á netinu?