ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir hans ágætu ræðu. Hann vék nokkuð að almennri umræðu, fréttaflutningi, kynningu fyrir almenningi á þessu þýðingarmikla og stóra máli. Skemmst er frá því að segja að ekki hefur mikið borið á því að greint væri frá efnislegu innihaldi þeirrar umræðu sem hér hefur staðið undanfarna daga um málið þrátt fyrir að sú umræða hafi verið efnismikil, leyfi ég mér að segja. Þó er rétt að nefna metnaðarfulla frásögn í Morgunblaðinu í dag á einum þremur eða fjórum síðum, dreift um blaðið, og ber að þakka fyrir það.
Það vekur athygli, eins og bent hefur verið á í þessum umræðum, að fjölmiðill sem almenningur leggur til milli 4.500 og 5.000 millj. kr. á ári skuli ekki hafa vilja eða metnað eða getu — ég veit ekki hvað af þessu á við — til að fjalla efnislega um þetta mál en virðist þeim mun meira fjalla um lengd umræðunnar og eitthvað af því tagi. Þeir sem heima sitja, og þeir eru margir sem fylgjast með þessari umræðu, vita hvaða atriði hafa verið tekin upp hér. Ég hef ekki tíma til að nefna nema örfá. Það er mögulegur árekstur við stjórnarskrána. Það eru afleiðingar af innleiðingu, að dómi færustu manna felur hún í sér að erlendar stofnanir fái a.m.k. óbein áhrif á skipulag, nýtingu og ráðstöfun orkuauðlinda þjóðarinnar. Það er alvarleg stefnubreyting gagnvart Evrópusambandinu um aðgang að auðlind, að við eigum að veita aðgang að auðlind fyrir aðgang (Forseti hringir.) að markaði o.s.frv. Þetta eru stór mál, herra forseti.