149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:20]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, þetta eru svo sannarlega stór mál, það er rétt hjá hv. þingmanni. Þess vegna hefði maður talið að fjölmiðlar færu í vandaða rannsókn á því hvaða afleiðingar þetta getur haft í för með sér fyrir heimilin og atvinnulífið. Stjórnarliðar þurfa t.d. að sýna fram á að þetta hafi engin áhrif og þar höfum við orðið vitni að því að hv. þingmenn hafa farið með rangfærslur. Það er ábyrgðarhluti. Ég nefni sem dæmi, af því við höfum verið að ræða það hér, hækkun á raforkuverði sem mér finnst skipta verulegu máli.

Þetta mál er að mörgu leyti flókið, það skal alveg viðurkennast, og er kannski ekki auðvelt fyrir hinn almenna borgara að fara í saumana á því. En eitt er alveg ljóst, þ.e. að afleiðingarnar af því að hafa innleitt þessa orkupakka eru þær að raforkuverð til heimila og fyrirtækja í landinu hefur hækkað. Við búum í landi sem er harðbýlt og að mörgu leyti getur verið erfitt að búa hér og þá sérstaklega á veturna þegar hita þarf upp híbýli o.s.frv. Það eru mikil lífsgæði að eiga aðgang að ódýrri orku.

Ef þessum lífsgæðum er ógnað með einhverjum hætti, ef búsetuskilyrðum hér á landi er ógnað, vegna þess að við erum að gangast undir einhverjar tilskipanir frá Evrópu, þá á að sjálfsögðu að fara í vandaða og mikla rannsókn á því hvort þetta geti verið rétt.