149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:36]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir andsvarið en jafnframt benda á að hann er kannski fullsnöggur að dæma Framsóknarmennina hvað það varðar að fresta fundinum sínum. Það er ekki útilokað að salurinn hafi verið tvíbókaður þar sem átti að halda fundinn ágæta og þeir því neyðst til að fresta honum. Ég trúi því bara ekki að þeir fresti miðstjórnarfundi til þess eins að sleppa við að rökræða orkupakkann við bakland sitt. En hvað veit maður?

Ég veit alla vega varðandi minn gamla flokk, sem mér þykir óskaplega vænt um, að þar eru margir heldur órólegir yfir stöðu mála og það er kannski ekki algengt að menn fari ákveðið á móti forystu flokks síns í snúnum málum. Þó hefur verið furðu mikið um það í þessu máli og það rammar inn hversu snúið málið er og stórt og mikilvægt, en kannski enn heldur má segja að það undirstriki hvað þessi meinta fyrirvaraleið sem var dregin eins og kanína upp úr hatti og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson, hefur kallað lofsverðar blekkingar, virðist fara illa niður hjá hinum almenna Sjálfstæðismanni. Við sjáum aftur þessi hlutföll í könnunum, hversu stórt hlutfall landsmanna er andvígt þessari innleiðingu. Ég myndi halda (Forseti hringir.) að af ríkisstjórnarflokkunum þremur sé hin eiginlega andstaða mest hjá Sjálfstæðisflokknum. En það er auðvitað bara tilfinning.