149. löggjafarþing — 111. fundur, 27. maí 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Virðulegur forseti. Það er svo sem engin sérstök spurning sem ég ætlaði að færa fram til hv. þingmanns, bara þakka henni fyrir að taka þátt í umræðunni. Mikill kynjahalli hefur verið í umræðunni og bara prýðilegt innlegg að hún komi hingað. Ég vildi gjarnan að fleiri tækju þátt í umræðunni en þingmenn Pírata með okkur í kvöld því að hún mun eflaust standa eitthvað svolítið áfram.