149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:56]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hvernig fær hv. þingmaður það til að ganga upp að annars vegar tali stuðningsmenn þessa máls um að við njótum skilnings út frá sérstöðu okkar og þar af leiðandi dugi að vísa í einhver samtöl stjórnmálamanna eða embættismanna á fundum, slíkt nægi sem fyrirvari við þetta mál, og svo hins vegar haldi sama fólk því fram að ef við myndum leyfa okkur að nota hið lögformlega ferli sem EES-samningurinn gerir ráð fyrir værum við að setja hlutina í uppnám og gætum að því er virðist samkvæmt þessum málflutningi átt yfir höfði okkar einhvers konar refsingu, jafnvel verið rekin úr EES-samstarfinu eða eitthvað þaðan af verra?

Mér finnst þetta einhvern veginn ekki ganga saman, ég tala nú ekki um þegar sama fólk notar hvort tveggja sem rökstuðning, annars vegar að það sé svo mikill skilningur á sérstöðu Íslands að við þurfum í sjálfu sér ekki fyrirvara og vísa í einhver samtöl embættismanna, það sé í rauninni bara meira en þarf til að menn tryggi það að ekki verði á okkur hallað, og hins vegar að það sé stórhættulegt að nýta það ákvæði EES-samningsins sem einmitt veitir okkur möguleika á svokallaðri sáttameðferð, þ.e. að senda málið aftur í sameiginlegu EES-nefndina, ræða sig að niðurstöðu þar með það að markmiði að allir megi vel við una, eins og ég held að það sé orðað í samningnum, finna niðurstöðu (Forseti hringir.) sem allir megi vel við una.