149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:38]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Ég gæti haldið a.m.k. eina eða tvær eða kannski tíu 20 mínútna ræður um þetta mál í viðbót en ég ætla að reyna að afmarka mig í þessari ræðu við tvo hluti, annars vegar hvernig staða Íslands lítur út ef lagður verður sæstrengur án þess að þriðji orkupakkinn hafi verið innleiddur og hvernig staðan liti út við lagningu sæstrengs ef þriðji orkupakkinn hefur þegar verið innleiddur. Þetta snertir einnig á því hvernig staðan lítur út fyrir og eftir lagningu sæstrengs.

Eins og hefur komið fram hjá mörgum hv. þingmönnum, þar á meðal hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, er alveg hægt að leggja sæstreng í dag. Áform hafa verið uppi í dágóðan tíma um að leggja sæstreng hjá aðilum úti í bæ sem að vísu skortir enn þá tilheyrandi leyfi og fjármagn samkvæmt þeim heimildum sem ég hef.

Þriðji orkupakkinn felur í sér regluverk um það hvernig eigi að haga ákveðnum hlutum í kringum það hvernig sæstrengsviðskipti skuli virka. Markmiðið er að tryggja neytendavernd, gagnsæi og samkeppni sem hefur skort á á orkumarkaði víða í heiminum, þar á meðal Íslandi á sínum tíma og í Evrópu á sínum tíma. Reyndar var eitt af aðalmarkmiðum fyrsta orkupakkans, ef ég skil rétt, að brjóta upp þá einokunarstöðu sem var komin upp í Evrópu á þeim tíma. Það var aldeilis fínt að brjóta hana upp og koma á samkeppni neytendum til heilla.

Það vald sem talað er um að sé framselt úr landi samkvæmt þriðja orkupakkanum er í 7.–9. gr. í reglugerð 713/2009. Þær eru ekki viðamiklar. Ég ætla ekki að lesa þær upp af því að ég hef takmarkaðan tíma en hver sem er getur flett þeim upp á netinu. Þær eru ekki langar en þær innihalda að vísu orð sem eru kannski ekki hverjum sem er augljóst hvað þýða ef ekki er að spurt vegna þess að þau eru tæknilegs eðlis, t.d. kerfisöng og þess háttar orð. Allt í góðu með það. Í 8. gr. téðrar reglugerðar nr. 713/2009 er kveðið á um hvaða ákvarðanir ACER, eða ESA í tilfelli Íslands, muni taka. Það er útlistað með tæmandi hætti. Ef einhver er ósammála mér um að það sé tæmandi háttur skal ég glaður rökræða það betur á eftir. Þar er einnig útlistað hvaða ákvarðanir það eru sem landsreglarinn á að innleiða. Ekki hvernig hann á innleiða þær, ekki hverjar þær eiga að vera, heldur hvaða reglur landsreglarinn þarf að innleiða. Þær eru: Verklagsreglur fyrir úthlutun flutningsgetu, tímamörk úthlutunar, hlutdeild í tekjum vegna kerfisangar og álagningu gjalda á notendur grunnvirkis sem um getur í tveimur öðrum greinum. Þá verður málið aðeins of tæknilegt til að ég setji tíma í það hérna. Þetta eru ekki hlutir eins og verðlagning á orku í Evrópu eða hvort leggja megi sæstreng eða ekki. Það er einfaldlega ekki í þessum lista. Það er ekki hluti af því sem ACER eða ESA mun geta ákveðið samkvæmt þessari reglugerð. Það er einfaldlega ekki þarna, alveg sama hversu oft annað er sagt.

Það kemur ekki til ákvarðana ESA eða ACER nema það sé kominn upp margra mánaða ágreiningur milli Orkustofnunar á Íslandi, sem verður landsreglarinn, og orkustofnunarinnar í hinu landinu. Einungis þá myndi ACER eða ESA fara að skipta sér af. Ef þriðji orkupakkinn hefur þegar verið innleiddur verða þessar samningaviðræður augljóslega hluti af undirbúningsferli fyrir sæstreng. Með öðrum orðum: Það verða aldrei þær aðstæður að þessar tvær orkustofnanir verði ósammála og þar af leiðandi aldrei þær aðstæður að ESA þurfi að grípa inn í. Það mun aldrei reyna á þetta ef við leggjum sæstrenginn eftir að við innleiðum þriðja orkupakkann. Þetta er meðal ástæðanna fyrir því að ég tel þriðja orkupakkann vera góðan ef ske kynni að sæstrengur, gegn mínum vilja og nokkurra annarra hv. þingmanna hér inni, yrði lagður.

Nú er tíminn strax búinn, það er alltaf sama sagan hér í þessari góðu pontu. En þetta er ástæðan fyrir því að ég tel þetta mál gott í samhengi við sæstreng. Það er vegna þess að ef hann verður lagður verður regluverkið þegar komið til. (Forseti hringir.) Það mun aldrei reyna á ESA, það mun aldrei reyna á þessa stjórnarskrárlegu fyrirvara (Forseti hringir.) og þetta er meðal ástæðna fyrir því að ég tel fyrirvarana ekki heldur skipta máli.