149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:17]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það sé ekki tilviljun að samtök á borð við Alþýðusamband Íslands, Samtök garðyrkjubænda og Hagsmunasamtök heimilanna og áhrifamiklir verkalýðsforingjar hafi skilað umsögnum um þetta þingmál þar sem lagst er gegn því að það fái samþykki.

Auðvitað blasir við að þar sem meginmarkmið og grundvallarsjónarmið þessa samstarfs eru samræming og einsleitni, þetta eru lykilorð, og þegar haft er í huga að á Íslandi er orkuverð mun lægra en að meðaltali í Evrópu, þá er ekki raunhæft að gera ráð fyrir öðru en að orkuverð hér á landi hækki til samræmis og í krafti einsleitni. Það er ekki raunhæft að orkuverð í Evrópu lækki til samræmis við það sem hér gerist og gengur.

Það blasir við að við höfum hér atvinnugreinar sem eru mjög háðar því að njóta þess samkeppnisforskots sem þær hafa notið vegna hins tiltölulega lága orkuverðs. Garðyrkjubændur hafa verið nefndir en við skulum líka átta okkur á því að í Noregi eru þungar áhyggjur af afdrifum orkufreks iðnaðar. Við erum með mikilvægan þátt í okkar atvinnustarfsemi sem er orkufrekur iðnaður og hann yrði náttúrlega í algjöru uppnámi ef þetta gengi fram, verðhækkun af því tagi sem við höfum verið að ræða hér.