149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:43]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þekkir hv. þingmaður einhver dæmi þess að sérfræðingar, lögspekingar, hafi fullyrt að leiðin sé ekki fær? Sérfræðingar hafi sem sagt gengið lengra en að segja að hún geti reynst óvissuför vegna þess að leiðin hafi ekki verið notuð og þar fram eftir götunum. Þekkir hv. þingmaður einhver dæmi þess að sérfræðingar á lögfræðisviði hafi sagt að leiðin væri bara ekki fær?

Annað atriði í þessu samhengi, af því að við þingmenn Miðflokksins höfum fundið okkur í þeirri stöðu að þurfa að tala hér um hríð, er að einhverjir þingmenn hafa lýst yfir þeirri skoðun sinni að rétt væri að ljúka þeirri umræðu sem hér á sér stað, sem er þrátt fyrir allt býsna efnisleg og ekki í neinum takti við það sem maður þekkir í sögulegu samhengi sem málþóf. Þar virðist aðilum sem þykir algjörlega ótækt að nýta 102. gr. EES-samningsins, með þeim rökum að greinin hafi ekki verið nýtt í 25 ár, þykja algjörlega sjálfsagt að nýta 71. gr. þingskapalaga sem hefur ekki verið nýtt í 70 ár til að stoppa þessa umræðu. Ég næ ekki utan um þetta. Ég er ekki betur gefinn en svo. Kann hv. þingmaður einhverjar skýringar á því hvernig sumir, fyrst og fremst þingmenn, í umræðunni hingað til ná að rökstyðja og tala sig að þeirri niðurstöðu að 25 ára hvíld á 102. gr. sé mun alvarlegri og líklegri til að slátra þeirri leið varanlega en 71. gr. þingskapalaga sem hefur ekki verið notuð í 70 ár?