ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir þessar spurningar sem aðallega vörðuðu leitina að fyrirvaranum sem hefur verið ansi torsótt verkefni. Ég vil upplýsa hv. þingmann um að það var nú ekki þannig að ég tæki það verkefni að mér, heldur æxlaðist það einhvern veginn þannig þegar ég byrjaði að tala um þennan lagalega fyrirvara og spyrja spurninga, ásamt öðrum þingmönnum, um hvar hann væri.
Ég spurði einfaldlega vegna þess að stjórnarþingmenn urðu margsaga þegar þeir voru spurðir um þetta 15. maí sl. Þá komu þeir hver á eftir öðrum með ábendingar um að hann væri þarna og svo kom næsti og sagði að hann væri þarna og sá þriðji — við vorum orðnir ansi ruglaðir, ég vil kannski ekki segja það, en við áttuðum okkur alla vega ekki á hvar hann væri að finna. Leitin hófst upp úr því. Hún stendur enn yfir, svo að ég upplýsi hv. þingmann, því að ekki hafa borist nein skýr svör um það hvar hann gæti verið að finna.
Sterkustu vísbendingarnar eru um að hann sé að finna í reglugerð sem liggur á borði hæstv. ferðamála-, atvinnu- og nýsköpunarráðherra, að hann sé þar í drögum og bíði undirritunar. Eins og okkur ber skylda til höfum við reynt að upplýsa fólk og benda á það sem betur megi fara og við höfum því bent á að reglugerð útgefin í Stjórnarráði Íslands, af einum ráðherra í ríkisstjórn Íslands, er ekkert sem veltir lagasetningu á vegum Evrópusambandsins. Það er auðvitað fráleitt þannig að ég vil ekki trúa því að þar sé hinn lagalegi fyrirvari fundinn. Ég held að það hljóti að vera meira kjöt á beinunum. Rannsóknin felst í því að hlusta eftir því sem stjórnarþingmenn segja.