149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:57]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Forseti. Þá vil ég spyrja hv. þingmann hvort upplýsingar frá Noregi hafi komið að einhverju gagni við rannsókn hans því að norska Stórþingið samþykkti átta fyrirvara. Það mál er reyndar eðlisólíkt ráðgátunni með íslenska fyrirvarann, en þeir fyrirvarar voru opinberir, það fór ekkert á milli mála hverjir þeir væru, skýrt upplistaðir fyrirvarar sem margir töldust ganga gegn inntaki og markmiðum þriðja orkupakkans. Engu að síður töldu Norðmenn mikilvægt að láta þá fyrirvara fylgja og það var til að mynda skilyrði þess að norski verkamannaflokkurinn fengist til að hleypa málinu í gegnum þingið þar.

Nú er uppi önnur staða með þessa norsku fyrirvara en hugsanlega íslenska fyrirvarann, sé hann til. Hún felst í því að Norðmenn hafa sent erindi til Evrópusambandsins og beðið það að staðfesta þá fyrirvara, þ.e. að veita raunverulegar undanþágur. Í 14 mánuði hafa ekki borist svör frá Evrópusambandinu því til staðfestingar að norsku fyrirvararnir séu samþykktir.

Þá liggur beinast við að spyrja hv. þingmann: Jafnvel þó að leitin beri árangur — ég heyri að hv. þingmaður hefur ekki gefið upp alla von enn, hann heldur rannsókninni áfram — og þessi eini íslenski fyrirvari finnist, telur hv. þingmaður, í ljósi þess hvernig staðan er í Noregi, að við megum eiga von á því að Evrópusambandið geri eitthvað með þann fyrirvara?