ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Hv. þm. Ólafur Ísleifsson svaraði kannski sinni eigin spurningu að mestu í þessu andsvari sínu. Ég er sammála hv. þingmanni um að eini fyrirvarinn sem einhverju skiptir er auðvitað að fá undanþágu á lögformlega réttum stað í þessu máli. Hvar er hann? Hann er fyrir sameiginlegu EES-nefndinni þar sem slíkur fyrirvari fengi umfjöllun. Við myndum óska eftir undanþágu frá 8. gr. og jafnvel fleiri greinum og jafnvel allri reglugerðinni, 713.
Miðað við yfirlýsingar hinna háu herra úti í Evrópu og EFTA-ríkjanna virðist ekkert vera því til fyrirstöðu að við fáum þessa undanþágu. Þeir hafa tekið mjög jákvætt í að þetta myndi a.m.k. ekki gilda á meðan ekki væri sæstrengur og eitthvað slíkt. Það er hinn eðlilegasti hlutur að fara þá leið.
Fyrirvari gengur yfirleitt út á það að þegar menn skrifa undir eitthvað með fyrirvara eru þeir í raun að undanskilja sig ábyrgð að einhverju leyti. Á þessu réttarsviði, Evrópuréttinum, eru hins vegar innleidd raunverulega lög sem þarna heita reglugerð, 713, og ef hún er innleidd og stjórnskipulegum fyrirvara aflétt með því að samþykkja hér þingsályktunartillöguna sem við erum núna að tala um er ekki unnt að undanskilja eitt eða neitt nema hafa rætt það við hinn samningsaðilann. Þetta er allt innleitt ef fallið er frá þessum fyrirvara og fyrirvarinn hefur einhvern tilgang, þ.e. stjórnskipulegi fyrirvarinn hefur einhvern tilgang og sá tilgangur kemur berlega í ljós í 102. gr., það er að ef við viljum ekki aflétta honum semjum við um undanþágu (Forseti hringir.) og það er auðvitað rétta leiðin.